Bloggy hell...
Framtíðarlandið
erfinginn v�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1084 dögum
12.10.2007 14:44:52 / hhaukur

Ja hérna

Ég slaka á í blogginu mínu, og allt fer í steik.

Byrjum á skemmtilegasta málinu.  Borgarstjórn, fyrrum og verðandi.  Mitt þefskin finnur fnik af spillingu.  Finnur fnik af græðgi í þessu máli.  En það er bara mín skoðun.

 
Lítum á hið augljósa.  Björn Ingi segir að hann hafi slitið samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn vegna ósamstöðu innan sjálfstæðismanna.  Hann hafi bara ekki haft það í sér að sjá menn krossfesta Villa í beinni.  Þannig að aðvitað fer hann frekar í samstarf við minnihlutann til að hjálpa Villa.  Það eru líka bara þrír flokkar og miklu minni líkur á ósamstöðu sem rýrir orðstýr og krossfestir borgarstjóra......

 

Eða er Björn Ingi að passa að einhverjir valdir menn detti ekki af OR spenanum?

Er Björn Ingi að passa fjárfestingar og gróðamöguleika vina sinna?

 

Og hverra manna er svo nýja samstæða forystan í borgarstjórn?

 

Margrét Sverrisdóttir, sú hin sama og var yfirgefin af Frjálslynda flokknum og varð að stofna Íslandshreyfinguna, er í borgarstjórn fyrir Frjálslynda.  Þetta er alvöru frjálslyndi. Engin ósamstaða hér.

 

Svandís, sem fór fram á flýtimeðferð fyrir dómstólum til að stöðva REI-málið, og sú sem fyrir nokkrum dögum heimtaði að Björn Ingi og Vilhjálmur segðu af sér vegna lymskubragða, er til í að geyma það og vinna með Birni Inga, sem vill kýla REI-málið í gegn. Engin ósamstaða hér.

 

Dagur B. sem studdi það að völdum starfsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur yrði boðnir kaupréttarsamningar í Reykjavik Energy Invest.  Hann verður borgarstjóri.  Engin ósamstaða hér.

 

Þessi fjögur fræknu munu á næstunni greiða úr óstjórn borgarinnar.  Samgöngur munu lagast og öðlast betra skipulag,  spilling mun hverfa...


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 16:41:46 / hhaukur

Undarlandið USA

Er nýkominn heim eftir vel heppnaða kristniboðsferð til Undralands.

Ekki svo að skilja að Undralandsbúar séu einhverju nær, heldur það að ég veit núna að þeim er ekki viðbjargandi.

Eftir þessa fyrstu ferð mína til Undralands er mér ljóst að þegar sagt er að allt sé stórt í USAi, þá er átt við ALLT.

Og ef þú ert eins og ég, íslendingur alinn upp við fákeppni og hátt verðlag, munt þú eiga í vandræðum með sjálfan þig í Undralandi.

Og það gerði ég....

Þarna standa verslanir í löngum bunum. Hver með sitt sérsvið, en selja samt allt. Það tók talsverðan tíma bara að velja eina búð. Álíka og þegar ég versla mér bíl. Keyra oft framhjá, skoða hvert smáatriði, vera viss.

Loks ákvað ég að fara í SEARS, sem er miðað við margar aðrar verslanir, lítil smáverslun. Vandræðin hófust strax þegar mér var ljóst að smáverslun í Undralandi er kílómeter sinnum kílómeter. IKEA hér heima er bara eins og Matvörubúðin á horninu. Pínulítið og illa upplýst.

Fyrsti hlutinn af SEARS var í gegnum verkfæri, og troðfullur. Ég lokaði augunum og bað Helgu mína að leiða mig í gegn, því annars væri ég ennþá í búðinni. Við vorum nefnilega að leita að barnafötum og einhverju á mig. Eftir tveggja tíma rölt gegnum verkfæri, klukkur, sjónvörp, þvottavélar, ryksugur, húsgögn, sængur, púða, skartgripi, gasgrill, útilegubúnað, slátturvélar, líkamsræktartæki, myndir, ferðatöskur, safnmynt, ljósmyndavörur, kvennmannsföt, nærföt, úlpur og gleraugu, fundum við barnafatadeildina. (Nota bene, við erum ennþá í SEARS). Þarna fékk ég næstum taugaáfall. Réttilega ætti að merkja þetta barnafatahreppur, ekki deild. Þetta var svo stórt að hver hilla hafði sitt eigið póstnúmer. Helga greyjið þurfti áfallahjálp eftir hálftíma árangurlausa tilraun til að velja bara nokkur föt á hann Heiðar Darra. Við enduðum á að taka bara kippu af öllum litum og stærðum. Og í bakaleiðinni nokkrar gallabuxur á mig og Helgu mína, slatta af bolum, slatta af sokkum, slatta af nærfötum, slatta af öllu.

Eftir margra klukkutíma æði innan um fleiri vörur en Hagkaup selur á ári, lenti ég í vandræðum við afgreiðslukassann. Afgreiðslukonan neitaði að taka við nema smá pening. Ég reyndi að útskýra fyrir henni að ég hafi verið að versla jafn mikið og heildarinnkaup fjölskyldunnar voru allt síðastliðið ár ( þar með talið nýji bíllinn), en hún þverneitaði. Tók bara klinkið og henti okkur út. Við fórum í aftur í SEARS daginn eftir......


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 12:47:08 / hhaukur

Ofsaakstur á bifreiðum

Þrír slösuðust í bílslysi um tvöleytið í nótt á mótum Geirsgötu og Mýrargötu. Að sögn lögreglu varð slysið með þeim hætti að bifreið var ekið á miklum hraða í vesturátt og missti ökumaður stjórn á bílnum, bíllinn rakst á bíl sem lagt hafði verið á bílastæði, snerist og hafnaði á húsi þar sem Hamborgarabúllan er nú til húsa. Þrír voru í bílnum og slösuðust allir, en enginn alvarlega að því að talið er.

Í fréttum Ríkisútvarpsins í morgun sagði að ökumaður bifreiðarinnar hafi verið í kappakstri er slysið varð. Talsverðan tíma tók að klippa mennina úr bílnum, en meðan lögregla var að störfum ók ölvaður ökumaður um vettvanginn, alls voru sex ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur.

Þessi ungi drengur ók í gegnum miðbæ Reykjavíkur á ofsahraða, með farþega í bílnum sínum.

Um síðustu helgi sluppu nokkrir drengir naumlega þegar þeir misstu stjórn á bílum á ofsahraða í Skagafirðinum.

Er þjóðfélagið að losa sig við ofsaakstur með því að leyfa þessum óvitum að reyna að drepa sig?

Ungt fólk um tvítugt heldur að það sé óbrjótandi, ódrepandi.  

Nú vantar bara að þjóðfélagið tapi sér soldið.

Nú vantar viðbrögð á borð við "Skjótum þessa andskota" "ekki hægt að vorkenna þessum ökuföntum" "Notum naglamottur"

Hraðakstur af götunum, meinum ungu fólki aðgang að öflugum ökutækjum, setjum þeim reglur og látum þau fylgja þeim.  

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 12:53:02 / hhaukur

Opið bréf til bifhjólamanna

Ágæti bifhjólamaður,

 

Eftir harða umræðu síðustu vikur vegna hraðaksturs bifhjóla sé ég ástæðu til þess að senda þér eftirfarandi.

 

 

Ég sat fund með varðstjóra Umferðardeildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Bað hann mig óformlega að aðstoða lögregluna við að ná til bifhjólafólks og stöðva þessa þróun áður en hún leiðir til hertra aðgerða löggjafaaldsins gagnvart bifhjólum og ökumönnum þeirra.

 

Lögreglan mun seint grípa til þess að notast við naglamottur til að hægja á bifhjólum, heldur mun Löggjafarvaldið, Alþingi, fyrr setja höft og hraðatakmarkanir í bifhjól, líkt og gert er með vöruflutningabíla og rútur í dag.

Ef þessar takmarkanir verða settar á bifhjól er hætt við að langt verði í þeim yrði aflétt á ný.

 

Ef við viljum eiga eðlileg samskipti við alla aðra í umferðinni, bifhjólin óheft og skemmtileg, skiptir miklu máli að við tökum fast á þessu máli. Taka því rólega, sýna fyrirmynd, og umfram allt fylgja lögum. Þannig gerum við fjölmiðlum ókeift að fjalla um lögbrot og háskalegt athæfi bifhjólafólks.

 

Tökum höndum saman og komum í veg fyrir að nokkrir tittir skemmi lífsstílinn okkar.

Þrýstum á stjórnvöld að hraða uppbyggingu aksturs og keppnisbrauta, og koma þannig hraðakstri í skipulagt og öruggt umhverfi.

 

Ég fordæmi allan ofsaakstur og ógætilega meðhöndlun bifhjóla.

Það er ósk mín að bifhjólafólk hagi akstri eftir aðstæðum og forðist leikaraskap og háskalegt athæfi.

Það er skylda hvers bifhjólamanns að hann virði og fylgi landslögum og verði öðru bifhjólafólki til sóma og fyrirmyndar.

 

 

Með vinsemd og virðingu,

 

Haugur bifhjólamaður


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 19:48:47 / hhaukur

Eins og þær ættu að vera...

Svakalega er ég orðinn þreyttur á fjölmiðlum.

Ekki þekki ég neinn sem verður var við þennan ofsakastur nema frá símalandi fjölmiðlum.

Þess vegna koma hér fréttirnar sem mbl og visir fannst ekkert krassandi að birta.

Bifhjólamaður slapp án meiðsla

Bifhjólamaður á leið suður Hafarfjarðarveg, slapp án meiðsla er hann ók hjóli sínu á löglegum hraða undir brúnna við Arnarnesveg. Að sögn sjónarvotta var langt frá því að hætta væri á ferðum og töldu hjólið nýþvegið, jafnvel bónað.

Hópakstur vélhjóla á Hellisheiði

Sex til sjö hjól tóku ekki frammúr öðrum ökutækjum á Hellisheiði um klukkan ellefu í gærkvöldi. Er talið að hópurinn hafi ekið á um 90 km hraða. Lögregla telur enga ástæðu til að gera hjólin upptæk.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 20:12:41 / hhaukur

Nýr bifhjólavefur

Þetta er glænýr mótorhjólavefur sem ég er að setja af stað.

Vetvangur bifhjólamanna og kvenna.

Slatti komið, og meira á leiðinni.

Nú þegar eru smáauglýsingar, vefverslun, pöntunarþjónusta og alls kyns fleira.

Endilega kíkið á þessa síðu, og látið alla bifhjólamenn vita.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 18:51:47 / hhaukur

Það má ekki aka hraðar en 90 km/klst

Það er ekkert gaman að hlusta á fréttirnar í dag. 

Bifhjólamaður stórslasaður, hálsbrotinn, sofandi á sjúkrahúsi eftir að hafa ekið á bíl.

Formálinn er ekki betri.  Tveir menn að stinga lögregluna af, ná ótrúlega miklum hraða mili Hellisheiðar og Rauðavatns, fara í gegnum vegatálma lögreglu, bruna Breiðholtsbrautina á ógnarhraða, og lenda þar í þessu umferðaróhappi. 

Ég spyr bara, var þetta adrenalínkikk þess virði?

Ég fordæmi ofsaakstur.  Svona lagað er engum til eftirbreytni, og enginn okkar er ódauðlegur.

Vona að drengurinn nái sér, og aki töluvert nær löglegum hraða í framtíðinni.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 13:38:06 / hhaukur

Það má ekki reykja bakvið hurð......


Á morgun tekur gildi hið alræmda reykingabann.
  Ekki bara á veitingastöðum heldur alls staðar.  Og þá verður ferlega gaman að sjá viðbrögð.  Ég var mikið að pæla í þessu í gærkvöldi, og komst á skemmtilegt flug.  Hvernig verður fréttaflutingur af þessu?  Hvernig verður dagbók lögreglunnar?

 

Hugsanleg frétt af mbl.is:

 

Lögreglu barst undir kvöld í gærkvöldi tilkynning um athugavert aksturslag bifreiðar í Hvalfjarðargöngum. Eftirlitsbifreið lögreglunnar á Akranesi brást við tilkynningunni og stöðvaði för bílsins, sem var á leið á Akranes.

Grunur vaknaði um að ökumaðurinn væri undir áhrifum tóbaks og var hann færður á lögreglustöð. Prófun sem gerð var benti til þess að hann væri undir áhrifum ólöglegra fíkniefna en lyfjapróf svaraði Winston, Marlboro, Bacatello vindla og Salem lights.

Við líkamsleit sem framkvæmd var fannst lítilræði af munntóbaki og í framhaldi af því var leitað í bíl mannsins. Við þá leit fundust 26 grömm af ætluðu filterslausu tóbaki, 17 grömm af munntóbaki, 1 gramm af Half&Half og 51 tafla af Nikotín tyggjói. Leitarhundur úr Borgarnesi var fengin til að aðstoða við leitina.

Hann var látinn laus að lokinni yfirheyrslu.

 

Önnur möguleg frétt:

Lögreglan á Blönduósi hafði í gærkvöldi afskipti af 2 ungum mönnum á sitthvorri bifreiðinni sem grunaðir voru um tóbaksmisferli. Voru þeir handteknir og færðir á lögreglustöðina á Blönduósi þar sem tóbakshundur fann sígarettuefni falin í öðrum bílnum en annar hinna grunuðu framvísaði sjálfur tóbakinu sem hann hafði falið í sínum bíl.

Við leitina var notaður tóbaksleitarhundur lögreglunnar á Blönduósi sem nýlega lauk grunnnámskeiði fyrir tóbaksleitarhunda sem haldið var af lögregluskóla ríkisins. Telur lögreglan að ekki sé víst að efnin hefðu fundist ef hundsins hefði ekki notið við.

Eftir yfirheyrslur var mönnunum sleppt lausum og telst málið upplýst.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 12:08:12 / hhaukur

Kosningaskandallinn

Þá er þessari veislu lokið. Niðurstaða kosninga er ljós, og það hangir við sama heygarðshornið. Hægri öflin urðu ofan á, enn einu sinni.

Ég er ekki sáttur, bara langt frá því. Við hérna til vinstri töpuðum þessu, en mjög naumlega.  Það vantaði ekki nema 14 atkvæði til þess að Rauðhaus og co hefðu komist áfram.  En Rauðhaus og hans fylgdarsveinar stóðu sig vel í þessari baráttu, og ljóst innst inni syrgi menn og konur. Farið hefur fé betra.

 

Finnst mér líka að það framboð sem var á nýju blóði, sum hver ekki neitt nema gjamm og tímaeyðsla, vera það sem eyðilagði fyrir fólki eins og mínu.

 

Og ég kaus. Vissi það að þetta væri tapað. Aðrir hafa komið í spilið og stolið atkvæðum. Hélt mig vinstra megin og frekar til miðju. Datt ekki í hug að líta til hægri, enda finnst mér þeir hafa skemmt mikið fyrir, hafa bókstaflega vaðið yfir minn mann Rauðhaus, og framtíðin virðist ekki björt. Alla vega þarf mikið að breytast til að við komumst áfram.

 

Og það var líka ömurlegt að fylgjast með síðustu mínútunum. Niðurstaðan var eiginlega ljós, en samt sat ég spenntur og vonaði það besta. Krossaði fingur og beið eftir síðustu tölunum......

 

Þá klippa þeir á Eurovision og fara að sýna frá Kosningavöku RÚV!!!!

Elín Hirst og Þórhallur allt í einu að tuða um nýjustu og fyrstu tölur bla bla bla.

Hverjum er ekki sama?!?

Hver vann Eurovision???


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 13:46:52 / hhaukur

Eurovision og Kosningar

 

Á morgun eru kosningar og ég tók próf á netinu til að sjá hvar ég stend.  Og það þurfti ekki mikil frávik svo ég styddi ýmist Frjálslinda, Framsókn, Sjálsftæðisflokk, Samfylkingu, Íslandshreyfinguna eða Vinstri Græna.

Og hvað á ég þá að kjósa?  Ekki hugmynd, miðað við þetta próf.  Ég er á milli í stefnuleysi.  Vil ekki Stóriðju, en veit ekki hvað ætti að koma í staðinn.  Það dugar ekki að segja að við ættum að virkja hugmyndaflug Íslendinga.  Ég er nefnilega akkurat þar.  Hugmyndaríkur Íslendingur og vinn við þróun.  Og nú ætla ég að telja up þá flokka sem hafa stutt fyrirtæki mitt gegnum árin, og raða þeim eftir því hve vel þeir hafa hjálpað okkur.

1.

2.

3.

4.

5.

6.

 

Eins og sjá má á þessum lista er má varla greina hvaða flokkur hefur staðið sig best.

 

Þá tel ég í staðinn upp þær hugmyndir flokkana um eitthvað annað en stóriðju sem mér lýst best á.

 

Bestu hugmyndir:

1. Þróunarvinna

2. Hátækni

3. Tæknimenntun

4. Stuðningur Ríkisins við ofantalið

 

Nú fara málin að skýrast betur.  Nú vantar bara að vita hvernig á að fara að þessu, því núverandi hugmynd og framkvæmd þess virkar ekki.  Iðntæknistofnun er hraðhindrun, Háskólarnir sýna ekki áhuga, bankarnir hjálpa ekki nema þeir fái veð í allri ættinni og hvergi á Íslandi finnst fólk sem er hæft til vinnu í þessum geira.  Og mig langar líka að vita hver er til í að borga fyrir þetta.  Iðnlánasjóður, þróunarsjóður, sjóður þetta og sjóður hitt eru til í að lána þegar hugmyndin er fullbúin og helst komin á markað.

Og skólarnir framleiða gott fólk sem getur unnið í banka, álveri, eða það sem best er og mest valið, flytja úr landi.

Hátækni- og þróunarfyrirtæki eru eins og RÚV og Eiríkur í Eurovision.  Tekur þátt, mokar pening í verkefnið, er með besta lagið talið í gæðum, góða sviðsmynd, syngur vel og spilar, og skilar af sér 100%.  Svo tekur mafía sem talar ekki íslensku lagið og hendir því.  Tekur sig saman og velur algera vitleysu sem á engin rök í raunverkuleikanum og kemur áfram með pólitískum leiðum.

 

Þannig að ég sé það að besta leiðin er að taka ekki þátt.  Fara til annara landa þar sem fólk heyrir sönginn, tekur upp og gefur út á plötu.  Fær svo sölulaunin.

 

OG það gera öll Íslensku Hátæknifyrirtækin.


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 12:45:43 / hhaukur

Hagsmunasamtökin PRESTAR

Prestar eru skrítinn þjóðflokkur. Bloggaði um það 10 mars í fyrra. Getið flett því upp. En nú vilja þeir ekki samþykkja að gefa saman samkynhneigða. Af hverju? Af því það stendur í biblíunni að það sé bannað.

 

Góð rök og gagnleg, en á sama tíma setur prestana í þau spor að misræma fólki og hópum fólks.

 

Það stendur nefnilega líka í biblíunni að það sé bannað að drepa. Ekki eru prestar að taka til baka skírnir og fermingar dæmdra morðingja. Þeir fá að gifta sig.

 

 

Og alltaf er fólk að samþykkja að vera saman í Guðs nafni þar til dauði skilur þau að. Og svo skilur þetta fólk, og giftir sig aftur. Er ekki einn að grunnboðskap biblíunnar að það sé bannað að ljúga. Hvað er þetta annað en að “skipta um skoðun”.

 

Það er líka bannað að stela. Þannig innrættir menn og konur fá að gifta sig.

 

Og biblían segir líka að guðsmenn skuli vera í sæmilegu ástandi.

 

Þriðja bók Móse 21:

“Því að enginn sá, er lýti hefir á sér, skal ganga fram, sé hann blindur eða haltur eða örkumlaður í andliti eða hafi ofskapaðan útlim, eða sé hann fótbrotinn eða handleggsbrotinn, eða hafi hann herðakistil eða sé tærður eða hafi vagl á auga eða kláða eða útbrot eða eistnamar.”

 

Ég hef séð prest klóra sér, haltir prestar hafa sést þjóna til altaris, meira að segja er að minnsta kosti einn fótalaus.

 

Á sama stað stendur:

“Eigi skulu þeir gjöra skalla á höfði sér, eigi raka skeggrönd sína, né heldur skera skurði í hold sitt. “

 

Bannað að raka sig!!!!

 

Af hverju eru þessi menn prestar? Biblían, sem bannar samkynhneigðum að giftast, er mótfallin þessu.

 

Eins og ég sé þetta eru prestar hagsmunasamtök. Fylgja orði Guðs, en ekki alveg. Bara þegar það hentar fólki. Ég taldi að kristið fólk væri umburðarlyndara en þetta.

 

Ég skora á Gunnar í Krossinum og aðra Guðsmenn að velja sér farveg. Annars vegar fara eftir því sem biblían segir. Hætta að snyrta skeggið, byrja að fordæma morðingja og senda í útlegð. Aftur kalla fermingarheit ef menn og konur ljúga og stela.  Og hætta að styðja fólk sem vill skilja, og giftast öðrum.

 

Gera þetta eins og sagt er í Guðs bók, eða fylgja samfélaginu. Vera ærlegir og fagna Guðs börnum. Ekki bara þegar það hentar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 12:12:42 / hhaukur

Pabbi, fæ ég bílinn?

Ameríkuhreppsfyndni.  Gott að lána unglingum bílinn sinn.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 12:32:04 / hhaukur

Gat-a Göt-ur

 

Mig langar svolítið að ræða gatnagerð. Í mörg ár hef ég verið fúll út í Vegagerð Ríkisins fyrir vegi, eða á ég að segja vegleysur, úti á landi. Margir staðir eru hreinlega lífshættulegir. Þetta finnur maður best ef ekið er á stórum flutningabíl, eða á bifhjóli. Það eru ófáir staðirnir og aðstæðurnar þar sem bifhjólamenn geta misst stjórn á ökutæki sínu aðstæðna vegna.

En núna tók steininn úr. Tveir "glænýjir" vegir á höfuðborgarsvæðinu, Sæbraut við Klettagarða og Reykjanesbraut frá Smáralind inn í Garðabæ, eru hörmung. Fullt af lægðum til að henda mönnum í loft upp, rásir, holur og hæðir. Sigið eins og 20 ára gamlir vegir með bundnu slitlagi.

Á Reykjanesbrautinni “nýju” í Garðabænum er ekki einn beinn og ósléttur kafli. Meira að segja glænýtt vegriðið er eins og það hafi fokið þangað, allt kræklótt og skakkt. Reyndar er ennþá verið að vinna við þennan vegakafla, en Sæbrautin á að vera tilbúin. Þar eru menn að leggja gras og taka til. En akreinin til austurs er eins og Þjóðvegur nr.1 við Hvammstanga. Ég veit ekki hvort ég er að koma að fara.

Gaman væri að vita hvort verktakar fái fullgreitt fyrir að skila þessu svona.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 19:29:22 / hhaukur

kvarti kvarti kvarti

Er að horfa á Stöð 2.  Þar er fólk búsett í Grafarholti að mótmæla nýjum flugvelli á Hólmsheiði.

 

Það vill enginn fá flugvöllinn.  Hann raskar ró þeirra.

Best bara að hafa flugvöllinn þar sem hann er. 

Væl væl væl.

Amma og afi bjuggu í Sörlaskjóli, og þar hef ég líka búið.  Þar var aðflugsleiðin að austur vestur flugbrautinni framhjá stofuglugganum hjá ömmu og afa.

Ekki man ég eftir að nokkur hafi kvartað yfir hávaða.  Ekki tók ég eftir neinu.  Var vanur þessu og kippti mér ekkert upp við flugvélar að lenda og taka á loft.

 

Á sama hátt fór ég oft frammhjá Austurstræti 22, og Lækjargötu 2.  Þessi hús hafa verið máluð í ýmsum litum, skipt um glugga, skipt um rekstur, málað aftur, annar rekstur.  Ýmist að máta gallabuxur, drekka kakó, detta í það eða að dansa.  Allt í sama húsinu.

Stöðugar breytingar og enginn sagði orð þegar einhver gúbbi málaði Austurstræti 22 gult og kallaði skemmtistaðinn Berlín, eða blátt og kallaði Astró. Eða Grátt og kallaði Pravda.  Og öllum var sama þegar Kebabhúsið opnað.

 

Núna hafa allir skoðun.  Allt í einu brunnu þessi hús, og Villi borgarstjóri nefndi að hann vildi gera þetta upp í upprunalegri mynd.  Anna vélstýra gengur svo langt að halda að Villi meini upprunalega mynd Austurstrætis, það er grjót og mela eða eitthvað svoleiðis. 

 

Mér er persónulega alveg sama hvar flugvöllurinn er, eða hvernig hús stendur í Austurstræti. 

 

Fínt ef Kebabhúsið opnar aftur.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan
Svona er �?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733845 dögum
Leitarbox